Innlent

Vilja afnema stimpilgjöld

Tæplega 95 prósent þáttakenda í vefkönnun sem fram hefur farið á vef Neytendasamtakanna telja að afnemi eigi stimpilgjöld og lýsa samtökin undrun yfir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi á Alþingi í vetur. Talin er full ástæða til að ítreka að slíkt verði lagt fram að nýju næsta haust enda ófáir þingmenn lýst sig andsnúna stimpilgjöldunum sem fyrst og fremst koma niður á fólki sem er að festa kaup á sinni fyrstu íbúð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×