Innlent

Tekur ekki þátt í R-listaviðræðum

Dagur B. Eggertsson fulltrúi óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur á ekki aðild að viðræðum R-listaflokkanna um áframhaldandi samstarf þeirra í borgarstjórn. Hann telur eðlilegt að flokkarnir ljúki viðræðum sín á milli um framhaldið og segist ekki hafa áhyggjur af því að ekki verði hugað að stuðningi óflokksbundinna við listann. Það eru allir mjög meðvitaðir um það að styrkur Reykjavíkurlistans hefur byggst á því að vera annars vega í samstarfi þriggja flokka og hins vegar þessi sterka skýrskotun lagt út fyrir raðir þeirra". Dagur segir umræðuna um samstarf óflokksbundinna við R-listann alls ekki eiga að snúast um sína persónu og hann geri ekki tilkall til eins eða neins í þeim efnum. "Ég vil ekki að mitt nafn blandist neitt inn í þær ákvarðanir hvort menn ætli að bjóða fram saman eða ekki", segir Dagur B. Eggertsson og neitar því að hann sé á leið í einhvern R-listaflokkana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×