Innlent

Kynferðisbrotakafli endurskoðaður

Dómsmálaráðuneytið vinnur nú að breytingum og er að semja drög að frumvarpi á þeim ákvæðum í kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga sem fjalla um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi. Hefur ráðuneytið fengið Ragnheiði Bragadóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, til að semja drög að frumvarpi vegna breytinga á ákvæðunum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti þessar breytingar á fundi í morgun sem haldinn var að frumkvæði aðgerðarhóps gegn kynbundnu ofbeldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×