Innlent

Skipaði tvo nýja sendiherra

Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. Helgi hóf störf í utanríkisþjónustunni árið 1970 og hefur undir það síðasta verið prótokollstjóri. Hann hefur unnið í sendiráðum Íslands víða um heim. Sveinn hóf að vinna við utanríkisviðskipti í viðskiptaráðuneytinu árið 1970 og fluttist síðar yfir í utanríkisráðuneytið þar sem hann hefur verið sendifulltrúi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×