Milwaukee fékk fyrsta valréttinn 29. maí 2005 00:01
Í vikunni varð ljóst hvaða lið hlytu fyrstu valréttina í nýliðavali NBA sem fram fer í lok næsta mánaðar. Lið Milwaukee Bucks datt heldur betur í lukkupottinn þegar þeir hlutu fyrsta valréttinn, enda voru líkurnar á því að þeir fengju að velja númer eitt ekki nema um 6%. Þetta er í fjórða skipti sem lið Milwaukee fær fyrsta valréttinn, en síðast völdu þeir Glenn Robinson númer eitt árið 1994 og þar áður höfðu þeir fengið goðsögnina Kareem Abdul Jabbar í valinu. Atlanta Hawks fengu annan valréttinn, sem kom ekki í óvart, því þeir voru með lélegasta árangur allra liða í deildinni í vetur og höfðu því bestar líkur á að hljóta fyrstu valréttina. Portland Trailblazers voru einnig nokkuð heppnir og lönduðu þriðja valréttinum, New Orleans fékk þann þriðja og Charlotte fimmta. Nýliðavalið fer fram þann 28. júní og þá kemur í ljós hvaða leikmenn það verða sem liðin velja sér. Talið er að slegist verði um fjóra unga leikmenn sem þykja bera af í valinu og koma til með að geta hjálpað liðum sínum verulega frá fyrsta degi. Flestir hallast að því að það verði leikmaður ársins í háskólaboltanum, Andrew Bogut frá Utah háskólanum sem verður valinn fyrstur, en hann er fjölhæfur miðherji sem gæti nýst flestum ef ekki öllum liðum í NBA deildinni. Framherjinn Marvin Williams frá Norður-Karólínu er einnig talinn líklegur til að fara snemma í valinu, sem og leikstjórnandinn Chris Paul frá Wake Forest. 10 Fyrstu valréttirnir: 1. Milwaukee 2. Atlanta 3. Portland 4. New Orleans 5. Charlotte 6. Utah 7. Toronto 8. New York 9. Golden State 10. LA Lakers
Körfubolti Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira