Innlent

Úthafskarfi í hættu vegna ofveiði

Úthafskarfastofnarnir eru í hættu vegna ofveiði og ofveiðin leiðir til verðhruns á mörkuðum. Hvort tveggja er alvarlegt fyrir Íslendinga því að veiðarnar hafa skilað þjóðarbúinu þremur til fjórum milljörðum króna árlega. Á sama tíma eru sjóræningjar að útmá stofninn á Reykjaneshrygg. Úthafskarfastofnarnir eru tveir, annar heldur sig í efri lögum sjávar, hinn á meira dýpi. Þeir halda mikið til á mörkum íslensku lögsögunnar en fara stundum þar inn fyrir og þá sitja íslenskir togarar einir að þeim. Sjö af þeim rúmlega sextíu skipum sem nú eru á karfaveiðum á Reykjaneshrygg eru sjóræningjaskip og hafa engan kvóta. Hvaða áhrif hefur þetta á stofnana? Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir áhrifin tvenns konar. Sambandið telji að stofnarnir séu í hættu vegna ofveiði og því skipti miklu máli að þessar veiðar verði stöðvaðar. Þá hafi veiðarnar áhrif á markaðinn, en skipin veiði jafnvel tugi þúsunda tonna af karfa. En burtséð frá sjóræningjaskipunum, eru ekki of mörg skip með kvóta? Friðrik játar því og segir að verið sé að veiða umtalsvert magn á Reykjaneshryggnum. Á því sé tekið á vettvangi NEAFC, en þegar sjóræningjaveiðarnar bætist við versni ástandið enn. NEAFC er sáttmáli ríkja sem land eiga að Norðaustur-Atlantshafi. En hversu mikil áhrif hefur þessi ætlaða ofveiði á það hversu mikið Íslendingar veiða innan lögsögunnar? Friðrik alveg ljóst að þau áhrif séu mikil vegna þess að karfinn gangi inn í lögsöguna en þarna sé hann tekinn á línunnni. Þess vegna skipti miklu máli að Landhelgisgæslan sé á staðnum því skipin eigi það til að fara inn fyrir lögsögu Íslands. Landhelgisgæslan varð að fresta áætluðu eftirlitsflugi í gær en ætlar þess í stað á morgun að athuga aðstæður á miðunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×