Innlent

Forsetar ræðast við

A. P. J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kom til landsins í gær í fyrstu opinberu heimsókn indversks forseta til Íslands. Kalam hittir Ólaf Ragnar Grímsson forseta á Bessastöðum fyrir hádegi í dag. Dagskrá Indlandsforseta er þétt skipuð. Í dag ávarpar hann ráðstefnu í Nordica hótelinu, heimsækir Aktavis, og hittir rektor Háskóla Íslands. Heiðurskvöldverður verður haldinn í boði forseta Íslands. Á morgun fundar Kalam meðal annars með forsætisráðherra og heimsækir Þingvelli. Indlandsforseti heldur heim á leið á miðvikudagsmorgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×