Innlent

Prófkjör síðla hausts

Prófkjör vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006 verður haldið mánaðamótin október nóvember næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag og verður prófkjörið lagt til við fulltrúaráðsfund í byrjun september. Þátttaka í prófkjörinu verður heimil öllum fullgildum meðlimum sjálfstæðisfélaganna í kjördæminu sem þar eru búsettir og hafa náð 16 ára aldri prófkjörsdagana. Einnig þeim stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins sem eiga kosningarétt í kjördæminu við kosningarnar og hafa undirritað inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×