Innlent

Samfylking vill R-lista áfram

Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík vill ganga til viðræðna um endurnýjað samstarf innan Reykjavíkurlistans. Í ályktun stjórnar félagsins, sem haldinn var síðastliðinn sunnudag, segir að árangur síðustu þriggja kjörtímabila sé slíkur að ábyrgðarlaust og óskynsamlegt væri að slíta samstarfi Reykjavíkurlistans. Stjórn félagsins beinir því til fulltrúaráðs Samfylkingarfélaganna í Reykjavík að veita umboð til samningaviðræðna undir merkjum Reykjavíkurlistans og að fulltrúarnir beiti sér fyrir því að slíkt umboð verði samþykkt á fundi ráðsins á morgun, 15. júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×