Innlent

Pólitískur kattaþvottur

Forystumenn stjórnarandstöðunnar ætla að ræða saman í dag um viðbrögð við niðurstöðu Ríkisendurskoðunar í bankamálinu. Málið er ekki á dagskrá fjárlaganefndar Alþingis sem fundaði á hádegi. Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar, segir ekkert athugavert við það að forsætisráðherra hafi kynnt skýrsluna áður en hún var rædd í nefndinni. Hart hafi verið sótt að honum í málinu. Þingmaður Vinstri-grænna furðar sig á yfirlýsingum formannsins. Magnús segir að niðurstaða Ríkisendurskoðunar um hæfi forsætisráðherra til að koma að einkavæðingu Búnaðarbankans sýni að málflutningur stjórnarandstöðunnar hafi verið ómálefnalegur og innistæðulaus með öllu. Hann segist alltaf hafa vitað að ráðherrann hafi verið í veikindaleyfi á þeim tíma sem fram kemur í skýrslunni og tók því ekki þátt í ákvörðunum í málinu. „Mér finnst málflutningur stjórnarandstöðunnar hafa verið mjög sérkennilegur í þessu máli,“ segir Magnús. „Það hefur verið gengið mjög harrt fram gegn forsætisráðherranum um að hann hafi verið vanhæfur í sínum störfum sem auðvitað kemur í ljós að er ekki ... (Stjórnarandstöðuþingmenn) hrekjast endalaust undan rökum sem fram koma í málinu. Nú er það nýjasta að þeir eru farnir að beina spjótum sínum að Ríkisendurskoðun sem er undirstofnun Alþingis og ég tel því miður að stjórnarandstaðan sé mjög villu vegar í þessu máli,“ segir Magnús. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, segir að menn séu að verða vitni að pólitískum kattaþvotti sem sé að verða regla fremur en undantekning í íslenskum stjórnmálum. Aðkoma Ríkisendurskoðanda að málinu sé nokkuð undarleg og mjög mótsagnakennd. Að eigin sögn hafi Ríkisendurskoðandi haft frumkvæðið sjálfur að því að kanna hæfi forsætisráðherra í málinu. Svo hvítþvoi hann ráðherrann og segist jafnframt ekki hafa umboð til að kveða upp úr um hæfi eða vanhæfi hans á lagalegum forsendum. „Hvað snýr upp og niður í þessu máli er vandséð en hitt er augljóst, að það skuli gerast, að sá ráðherra sem rannsókn eða athugun beinist gegn skuli sjálfur boða til fréttamannafundar til að lesa valda kafla upp úr minnisblaði rannsakenda. Þetta eru vinnubrögð sem eru fáheyrð,“ segir Ögmundur.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×