Innlent

Lögfræðiálit kemur til greina

Forystumenn stjórnarandstöðunnar sitja nú á fundi og ræða viðbrögð við niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um að forsætisráðherra hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu ríkisbankanna þrátt fyrir tengsl sín við fyrirtækið Skinney Þinganes. Til greina kemur að stjórnarandstaðan sammælist um að kalla eftir sérstöku lögfræðiáliti í málinu. Málið var ekki rætt í fjárlaganefnd í dag en sérstakur fundur verður í nefndinni á fimmtudag þar sem minnisblað Ríkisendurskoðunar verður til umfjöllunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×