Innlent

Utanríkisþjónustan vex enn

Utanríkisþjónustan vex og vex. Tveir uppgjafapólitíkusar bættust í dag í hóp sendiherra og virðist sem nægt rúm sé innan þjónustunnar til að finna fleiri samastað. Stöð 2 greindi frá því fyrir þremur vikum að til stæði að finna þeim Markúsi Erni Antonssyni og Guðmundi Árna Stefánssyni starfa hjá utanríkisþjónustunni. Þá kannaðist hvorugur við það, sögðust koma af fjöllum þannig að svo virðist sem fréttastofan hafi vitað meira um hagi mannanna en þeir sjálfir. Í dag var þetta hins vegar staðfest. Markús er á leið til Kanada í haust og Guðmundur tekur við af Svavari Gestssyni í Stokkhólmi. Um leið verður skipt um sendiherra víðar og ýmsar innanhússtilfæringar gerðar hjá utanríkisþjónustunni og -ráðuneytinu. Þá verða alls 28 sendiherrar á launaskrá, 33 séu hinir ýmsu skrifstofustjórar taldir með og eru þó sendiskrifstofurnar aðeins nítján. Þrír sendiherrar láta þó af störfum á næstunni. Frá því að Davíð Oddsson tók við embætti utanríkisráðherra hafa, auk Markúsar og Guðmundar, í það minnsta þrír sendiherrar bæst við, tveir innanhússmenn sem fengu stöðuhækkun og Albert Jónsson varð sendiherra þegar hann fluttist með Davíð úr stjórnarráðinu. Auk þess hefur bæst við nokkur fjöldi starfsfólks með óljósa titla. Lára Margrét Ragnarsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, er til að mynda sérfræðingur á alþjóðaskrifstofu. Júlíus Hafstein er skrifstofustjóri á skrifstofu ferðamála- og viðskiptaþjónustu, en innan vébanda utanríkisráðuneytisins eru nú þegar útflutningsráð og viðskiptaskrifstofa. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undanfarnar vikur ítrekað leitað upplýsinga hjá utanríkisráðuneytinu um mannaráðningar þar, fjölda sendiherra við ýmis störf sem og tilgang og starfslýsingu hinna ýmsu skrifstofa sem virðast, miðað við nafngiftir, sinna nánast sömu störfum. Engin svör hafa borist frá utanríkisráðuneytinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×