Innlent

Gagnrýna samtryggingu stjórnmála

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, harma hvernig staðið er að skipun sendiherra fyrir Íslands hönd og segja ljóst að samtrygging íslenskra stjórnmálamanna liggi í sumum tilvikum þvert á flokkslínur. Hér er beinlínis vísað til þess að Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur verið skipaður sendiherra Íslands í Svíþjóð. Andrés Jónsson, formaður ungra jafnaðarmanna, segir þá ekki hrædda við að segja það upphátt að siðvæðing í íslenskum stjórnmálum sé tímabær. Þeir telji að auglýsa eigi störf sendiherra eins og önnur störf þannig að breiðari hópur sinni slíkum störfum, bæði fólk sem starfað hafi í utanríkisþjónustunni, menntamenn og fólk úr fjármálalífinu ásamt stjórnmálamönnum. Ungir jafnaðarmenn telji hins að þetta samtryggingarkerfi þar sem þeir flokkar sem eru við völd skipi sína menn í flestöll sendiherraembætti en einn og einn úr öðrum flokkum sé einnig skipaður beri merki þess að stjórnmálamenn tryggi hver öðrum þessi störf. Aðspurður hvort Guðmundur Árni Stefánsson hefði ekki átt að þiggja sendiherrastöðu í Svíþjóð segir Andrés að hann geri ekki athugasemd við það. Þetta snúist ekki um persónu Guðmundar Árna heldur vilji ungir jafnaðarmenn að kerfinu verði breytt. Næsta kynslóð stjórnmálamanna verður að gæta þess að taka ekki upp sömu ósiði og hin, að því er virðist, óforbetranlega kynslóð stjórnmálamanna sem nú stýrir för á Alþingi Íslendinga, segir í ályktun framkvæmdastjórnar ungra jafnaðarmanna. Annaðhvort beri að auglýsa stöðurnar eða láta hina pólitískt skipuðu fulltrúa víkja á sama tíma og þeir hverfa frá völdum sem skipuðu þá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×