Innlent

Vill kosningar um stækkun álvers

Alcan á að leggja til hliðar áform sín um að stækka álverið í Straumsvík. Þetta segir umhverfisnefnd Hafnarfjarðar. Stækkunin gæti orðið að pólitísku hitamáli, en fulltrúi í umhverfisnefnd vill að bæjarbúar kjósi um hana í haust. Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar hefur fallist á að tillaga Alcan að deiliskipulagi fyrir stækkað álver með 460 þúsund tonna framleiðslu verði sendi út til kynningar, en vegna stækkunarinnar yrði meðal annars að breyta legu Reykjanesbrautar. Nefndin vill þó helst að fyrirtækið leggi öll áform um stækkunina til hliðar þar sem það þjóni best hagsmunum bæjarbúa til lengri tíma að ekki verði tekið meira land svo nærri íbúðabyggð undir mengandi stóriðju en það sem þegar sé búið að ráðstafa. Kristján Bersi Ólafsson sem á sæti í umhverfisnefnd Hafnarfjarðar segir að mengun aukist í bæjarlandinu frá því sem hún sé núna því að þó að hreinsibúnaður verið eitthvað betri í stækkuðu álveri þá aukist mengunin í heild vegna þess hve mikil stækkunin er. Þessi viðbót auk þess lands sem fari undir stærra álver og það sem verði ekki hægt að nota vegna stærra mengunarsvæðis takmarki framtíðaráform um byggingar á staðnum. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan, bendir á að allt svæðið sem stækkunin nær yfir, sé skilgreint sem iðnaðarsvæði. Íbúaðarbyggðin sé nú 1,8 kílómetra frá álverinu í Straumsvík. Í umhverfismatsskýrslunni sem hafi verið lögð fram árið 2002 og samþykkti sé tekið mjög nákæmlega á þessum málum. Möguleikar séu á að stækka verksmiðjuna út frá þessum sjónarmiðum. Málið gæti orðið að pólitísku hitamáli í Hafnarfirði og vill fulltúi umhverfisnefndar bæjarins að kosið verði um það í haust á sama tíma og kosið verður um sameiningu Hafnarfjarðarbæjar og Vatnsleysistrandarhrepps.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×