Innlent

Fundað um myndatöku í Krísuvík

Það ræðst væntanlega á næstu klukkustundum hvort kvikmynda megi atriði í myndinni Flags of Our Fathers í Krísuvík. Í morgun hófst fundur í skipulags- og byggingarráði Hafnarfjarðar þar sem endanleg ákvörðun verður tekin. Nokkrar deilur hafa sprottið upp út af myndinni undanfarið og umhverfisnefnd Hafnarfjarðar og stjórn Reykjanesfólkvangs hafa mótmælt tökunum af ótta við að landsvæðið við Krísuvík eyðileggist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×