Innlent

Spurning um hæfi Halldórs

"Við vildum fá nánari skoðun á forsendum þessa máls en kom fram í minnisblaði Ríkisendurkskoðunar. Í álitsgerðinni kemur fram að í minnisblaði Ríkisendurskoðunar hafi stofnunin verið of þröng í áliti sínu þvi hún hafi einblínt um of á fjölskyldutengsl en ekki hin pólitísku tengsl hlutaðeigandi aðila í málinu. Margir helstu gerendur í málinu voru innstu koppar í Framsóknarflokknum, til dæmis Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir," segir Ögmundur Jónasson þingmaður Vinstri grænna um lögfræðiálit sem stjórnarandstaðan lét vinna um hæfi Halldórs Ásgrímssonar við sölu ríkisbankanna.  "Ég tel álitið vera mjög varfærnisnlegt og eftir að hafa lesið álitið situr maður eftir með þá vissu um að Halldór hafi verið bullandi vanhæfur. Mér finnst einkennilegt að jafn reynslumikill maður og Halldór skuli ekki hafa áttað sig á því að hann átti að segja sig frá málinu og mér finnst barnalegt þegar menn reyna að neita því," segir Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður Frjálslynda flokksins og bætir því að sér finnist skrítið af Halldóri að kasta endalaust ábyrgðinni yfir á Ríkisendurskoðun; "Umboðsmaður Alþingis á  skera úr um vanhæfi Halldórs og við skulum vona að hann geri það fljótt og örugglega." "Það væri algerlega fráleitt að spyrja lögfræðinga beint um hæfi forsætisráðherra því þeir hafa ekki fullan aðgang að öllum upplýsingum málsins og geta því ekkert fullyrt um hæfi forsætisráðherra," segir Lúðvík Bergvinsson um ummæli Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra; "Sú spurning sem stendur eftir er sú hvort eðlilegt geti talist að Halldór hafi verið beggja vegna borðsins þegar ríkisbankarnir voru seldir, bæði seljandi og kaupandi. Spurningin  hvort það sé eðlilegt að þeir sem standa að sölu ríkiseigna skuli selja þær vinum sínum, ættingjum og flokksbræðrum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×