Innlent

Júlíus Vífill gefur kost á sér

Júlíus Vífill Ingvarsson ætlar að gefa kost á sér í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Júlíus sagði í samtali við fréttastofu að fjöldi fólks hefði haft samband við hann síðustu daga og skorað á hann að snúa sér aftur að stjórnmálum en hann sat í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1998 til 2002. Hann hefði að vel athuguðu máli ákveðið að verða við þessum áskorunum en hann segist ekki vera búinn að taka ákvörðun um hvort hann sækist eftir því að leiða listann.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×