Innlent

Magnús Þór glaður en Ögmundur ekki

"Við viljum að all skattkerfið sé tekið til endurskoðunar með það fyrir augum að færa byrðarnar af herðum þeirra sem hafa litlar eða meðaltekjur og yfir á hina sem hafa úr nógu að spila," segir Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hann telur nauðsynlegt að skattur á arð og fjármagnstekjur sé hækkaður til jafns við tekjuskatt enda hafi margir tekjur af fjármagni. "Ríkisstjórnin gengur hins vegar í gagnstæða átt og þetta er hluti af stórum pakka sem er ívilnandi fyrir hátekjufólkið í landinu." Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, er ánægður með fyrirhugaða skattalækkun þó honum mislíki margt annað. "Þetta er mjög jákvætt og það hlýtur að koma sem flestum til góða að tekjuskatturinn sé lækkaður," segir Magnús Þór. Hann tekur undir með Ögmundi um nauðsyn þess að fjármagnstekjuskatturinn verði hækkaður en hann nemur tíu prósentum. "Það mætti lækka tekjuskattinn ennþá meira ef fjármagnstekjuskatturinn yrði hækkaður. Ég hef hins vegar fengið nóg af launamisréttinu í landinu. Það eru að verða til tvær þjóðir, annars vegar þessi ofsalegu ríku og svo við hin, þessir venjulegur þrælar sem erum skattpýndir," segir Magnús Þór. "Ég fagna því að til standi að lækka virðisaukaskatt á mat enda hefur Samfylkingin barist lengi fyrir því," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar. "Það er augljóst að það er svigrúm til skattalækkana þó það sé kannski ekki í jafn miklum mæli og ríkisstjórnarflokkarnir telja því við viljum halda uppi öflugu velferða- og menntakerfi." Ágúst Ólafur segir ekki forgangsatriði að lækka tekjuskatt, matarskattinn beri að lækka um helming enda komi það flestum til góða. Breytingar á tekjuskattinum megi svo skoða í framhaldinu.
Ögmundur Jónasson.
Ágúst Ólafur Ágústsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×