Innlent

Vilja úttekt á nýju leiðakerfi

Minnihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarráði flutti í dag tillögu þar sem skorað var á forstjóra Strætós bs. og fulltrúa Reykjavíkurborgar í stjórn fyrirtækisins að beita sér fyrir ýtarlegri úttekt á nýju leiðakerfi Strætós. Sjálfstæðismenn vilja að metið verði hvort fella eigi hið nýja leiðakerfi úr gildi og taka það gamla upp á nýjan leik eða gera umbætur á nýja leiðakerfinu til að mæta þeirri þjónustuskerðingar sem fjölmargir strætisvagnafarþegar hafa orðið fyrir. Tillagan var felld með 4 atkvæðum R-lista gegn 3 atkvæðum Sjálfstæðisflokks.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×