Innlent

Viðræðuslit alvaraleg tíðindi

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna segir ótímabært að gefa út dánarvottorð fyrir R-lista samstarfið á næsta kjörtímabili. "Nefndin sendi málið heim til flokkannna og það er þeirra að stíga næstu skref. En auðvitað dregur út bjartsýni þegar þessi tíðindi verða. Það væri barnalegt að horfast ekki í augu við það að viðræðunefnd sem haldið hefur vel á annan tug funda skuli sigla í strand. Það verða að teljast alvarleg tíðindi. Ef til vill ýtir þetta við mönnum en nú þarf að horfast í augu við alvöru málsins."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×