Innlent

Áfall ef R-listi býður ekki fram

"Þegar R-listinn tók við völdum 1994 ríkti ófremdar ástand í boarginni, meðal annars í skóla-, dagsvistar- og atvinnumálum. R-listinn hefur gerbreytt stöðunni," segir Alfreð Þorsteinsson, oddviti Framsóknarmanna í R-listanum. Hann segir mikið áfall ef R-listinn bjóði ekki fram í næstu borgarstjórnarkosningum því enn séu verkefni fram undan. "Það verður Reykvíkingum til tjóns ef R-listinn fær ekki tækifæri til þess að bjóða fram til borgarstjórnarkosninga á næsta ári."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×