Innlent

Hugsanlega í samstarfi og baráttu

Sú ótrúlega staða gæti verið að koma upp að R-listaflokkarnir þrír þurfi að starfa áfram saman fram að kosningum, en standi jafnframt í harðvítugri kosningabaráttu sín á milli. Menn úr öllum flokkum, sem standa að R-listanum, telja mjög dvínandi líkur á að R-listi verði boðinn fram við næstu borgarstjórnarkosningar eftir að starf viðræðunefndar flokkanna sigldi í strand í gær. Boltinn er nú aftur hjá félögum flokkanna þriggja í Reykjavík og hafa Vinstri  - grænir boðað til félagsfundar á mánudag, en Samfylkingin og Framsóknarflokkur hafa ekki ákveðið fundartíma. Samkvæmt heimildum fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2 eru Samfylkingarmenn mjög óhressir með þrákelkni Vinstri - grænna, eins og þeir orða það, og nær sú óánægja út fyrir raðir borgarmálamanna, samanber orð Marðar Árnasonar í Íslandi í bítið í gær, að menn í landsmálapólitíkinni hlytu að spyrja sig hvort hægt væri að starfa með vinstri - grænum á þeim vettvangi. Ef fallið verður frá tilraunum til frekara samstarfs er sú sérkennilega staða komin upp að flokkarnir starfa áfram saman fram að kosningum án þess að stefna að frekara samstarfi sem gæti að mati kunnugra þýtt að stjórn borgarinnar yrði lausari í reipunum en ella.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×