Innlent

Ásgeir fer ekki á þing

Ásgeir Friðgeirsson mun ekki taka sæti á Alþingi á komandi þingi en hann var í fimmta sæti Samfylkingarinnar í Kraganum svokallaða og átti að leysa Guðmund Árna Stefánsson sem heldur til starfa í utanríkisþjónustunni. Sæti Ásgeirs tekur Valdimar L. Friðriksson. Í tilkynningu sem Ásgeir sendi fjögur þúsund félögum í Samfylkingunni kemur fram að hann ætli að nýta reynslu sína og kunnáttu í þágu íslenskra fyrirtækja á alþjóðavettvangi, en Ásgeir hefur undanfarið starfað sem upplýsingafulltrúi Björgólfs Thors Björgólfssonar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×