Innlent

R-listinn endanlega úr sögunni

Samfylkingin ætlar að bjóða fram eigin lista fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi.Þar með er ljóst að R-listinn er úr sögunni, en samstarf félagshyggjuflokkanna í Reykjavík hefur staðið yfir í tæp tólf ár. Stjórn fulltrúaráðsins samþykkti tillögu þar sem meðal annars segir að ráðið vilji að borgarfulltrúar Samfylkingarinnar starfi í borgarstjórn af heilindum út kjörtímabilið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×