Innlent

Barist innbyrðis um hylli kjósenda

Skýr merki þess að R-lista flokkarnir séu farnir að berjast innbyrðis um hylli kjósenda birtust á borgarráðsfundi í dag þegar Alfreð Þorsteinsson lagði til að hætti yrði við umdeilda gjaldskrárhækkun á leikskóla, sem Stefán Jón Hafstein hafði aðeins klukkustund áður reynt að vera á fundi með fulltrúum háskólastúdenta. Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, hefur undanfarna daga staðið í því að verja yfirvofandi hækkun leikskólagjalda gagnvart fjölskyldum þar sem annað foreldri er í námi, síðast á fundi með fulltrúum stúdentaráðs í morgun. Þegar Stefán mætti svo á borgarráðsfund í hádeginu lagði Alfreð Þorsteinsson fram tillögu um að fallið yrði frá hækkuninni. Alfreð segist ekki era að stríða Samfylkingunni og Stefáni Jóni með breytingartillögunni, heldur segir hann liggja í augum uppi að Reykjavíkurlistinn er búinn að boða gjaldfrjálsan leikskóla sem mun verða í áföngum á næstu misserum. Alfreð finnst því út í hött að á sama tíma sé verið að ákveða hækkun á ákveðna hópa. Hann sagðist sjálfur hafa staðið fyrir tillögunni en eftir að sú tillaga var samþykkt þá komu tillögur um gjaldfrjálsan leiksskóla og forsendur hafi því breyst. Alfreð segir þetta sérstakt mál og þvertekur fyrir að það boði stríð innan Reykjavíkurlistans. Hann telur ekki rétt að standa í stappi við stúdenta núna og þá alls ekki nokkrum mánuðum fyrir kosningar og honum finnst einnig óréttlátt að standa að þessari hækkun. Hann segist halda að Stefán Jón Hafsteins, formaður menntaráðs, sé alveg sammála sér að best væri að koma í veg fyrir þessa hækkun.   Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, segir að Alfreð sé ekki að koma aftan að samflokksmönnum. Hann setur tillöguna fram í eigin nafni og hún segir einnig að stúdentar hafi haldið málum sínum mjög á lofti gagnvart þeim. Hún kveðst hafa vitað af tillögunni fyrir fundinn en hún benti á að Alfreð hefi óskað eftir að leggja hana fram undir eigin nafni. Hún sagði enga ástæðu til að setja þetta einstaka tilfelli í stórt pólitískt samhengi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×