Innlent

Íhugar að taka slaginn við Alfreð

MYND/E.Ól
Framsóknarflokkurinn bíður fram undir eigin merkjum í næstu borgarstjórnarkosningum. Þetta var ákveðið á fundi kjördæmissambanda framsóknarfélaganna í gærkvöldi. Mikill vilji er til þess að haldið verði opið prófkjör framsóknarmanna en á fundinum var ákveðið að kjördæmissamböndin þrói útfærslu þess nánar. Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins íhugar að taka slaginn við Alfreð Þorsteinsson forseta borgarráðs Reykjavíkurborgar um fyrsta sæti listans í komandi borgarstjórnarkosningum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×