Innlent

Borgarstjóri fáorður um gagnrýni

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segist ekki mikið hafa að segja um gagnrýni Össurar Skarphéðinssonar, fyrrum formanns Samfylkingarinnar, á hennar orð í gær. "Össur Skarphéðinsson hefur í gegnum tíðina haft sínar skoðanir bæði á mönnum og málefnum, bæði utan og innan Samfylkingarinnar. Hann má hafa allar þær skoðanir sem hann vill á mér og því sem ég segi," sagði hún. Össur gagnrýndi orð sem hún lét falla í fréttaviðtali um að Stefán Jón Hafstein hafi "gengið með borgarstjórann í maganum" og þótti um virðingarleysi að ræða hjá forystumanni til samflokksmanns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×