Innlent

Helmingur vill sjálfstæðismann

Gísli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, er sá sem flestir Reykvíkingar vilja sem borgarstjóra, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 23,9 prósent vilja sjá Gísla Martein. Næstvinsælastur er Stefán Jón Hafstein Samfylkingu en 20,8 prósent þeirra sem tóku afstöðu nefndu nafn hans. Í þriðja sæti er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna. Núverandi borgarstjóri Steinunn Valdís Óskarsdóttir er einungis nefnd af 10,9 prósentum þeirra sem tóku afstöðu og er því í fjórða sæti yfir þá sem Reykvíkingar vilja sá sem borgarstjóra eftir næstu kosningar, samkvæmt skoðanakönnuninni. Nokkur munur er á afstöðu kynjanna til þessarar spurningar, en Gísli Marteinn er vinsælastur hjá báðum kynjum. Stefán Jón Hafstein virðist höfða frekar til kvenna. Tæp 23 prósent kvenna nefndu nafn hans en nítján prósent karla. Þá virðast karlmenn vera hrifnari af Vilhjálmi Þ. en konur. 22 prósent karla nefndu Vilhjálm en einungis þrettán prósent kvenna. Ef litið er á alla þá sem nefndir voru í könnuninni voru sjálfstæðismenn oftast nefndir sem borgarstjóraefni, en 47 prósent þeirra sem tóku afstöðu nefndu einhvern sjálfstæðismann. Auk Gísla Marteins og Vilhjálms voru Júlíus Vífill Ingvarsson og Guðlaugur Þór Þórðarson meðal þeirra tíu sem oftast voru nefndir. Rúm 39 prósent nefndu Samfylkingarfólk. Auk Stefáns Jóns og Steinunnar Valdísar voru Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir meðal þeirra tíu sem oftast voru nefndir. Aðrir tveir sem oftast voru nefndir eru Þórólfur Árnason og Dagur B. Eggertsson, báðir óflokksbundnir en hafa starfað fyrir Reykjavíkurlistann. 2,8 prósent þeirra sem tóku afstöðu nefndu einhvern frá Vinstri grænum. Hlutfall þeirra sem nefndu framsóknarfólk eða frjálslynda er samanlagt undir einu prósenti. Könnunin var gerð dagana 27. og 28. ágúst. Hringt var í 800 Reykvíkinga, skipt jafnt milli kynja og valið af handahófi úr þjóðskrá. Spurt var: "Hver vilt þú að verði næsti borgarstjóri Reykjavíkur?" og tóku 40,3 prósent svarenda afstöðu til spurningarinnar. Topp tíu Gísli Marteinn Baldursson 23,9% Stefán Jón Hafstein 20,8% Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson 18,0% Steinunn Valdís Óskarsdóttir 10,9% Þórólfur Árnason 5,0% Össur Skarphéðinsson 5,0% Dagur B. Eggertsson 4,3% Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2,8% Júlíus Vífill Ingvarsson 2,2% Guðlaugur Þór Þórðarson 1,2% Aðrir nefndir Björk Vilhelmsdóttir  Árni Sigfússon  Árni Þór Sigurðsson  Hanna Birna Kristjánsdóttir  Steingrímur J. Sigfússon  Alfreð Þorsteinsson  Bjarni Benediktsson  Ólafur F. Magnússon  Davíð Oddsson  Björgólfur Thor Björgólfsson  Pétur Blöndal



Fleiri fréttir

Sjá meira


×