Innlent

Stóra verkefnið að sigra í vor

"Ég er þakklátur fyrir þessa könnun og finnst gaman að sjá að fólk hefur trú á mér sérstaklega að því að könnunin var tekin áður en ég lýsti því yfir að ég stefndi á fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins," segir Gísli Marteinn Baldursson. "En að öðru leyti ráðast kosningarnar ekki í svona könnunum heldur þegar talið er upp úr kjörkössunum og stóra verkefnið er að samhentur hópur Sjálfstæðisflokksins sigri í borgarstjórnarkosningunum í vor. Stóra verkefnið hjá okkur sjálfstæðismönnum núna er þess vegna að velja sigurstranglegan lista sem getur aflað hinni góðu málefnastöðu sem við höfum, meirihlutafylgis meðal borgarbúa," segir Gísli Marteinn Baldursson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×