Innlent

Þakklátur fyrir stuðninginn

"Ég er mjög þakklátur fyrir þann stuðning sem ég fæ í þessari könnun en maður hlýtur alltaf að spyrja sig hvernig þetta er gagnvart væntanlegum kjósendum Sjálfstæðisflokksins," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, leiðtogi Sjálfstæðismanna í borgarstjórn um skoðanakönnun Fréttablaðsins. "Niðurstaðan í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna skiptir auðvitað mestu máli í þessu samhengi en þar munu flokksbundnir sjálfstæðismenn velja fulltrúa flokksins á framboðslista fyrir komandi kosningar," segir Vilhjálmur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×