Sport

Meiðsli hjá enska landsliðinu

Sven-Göran Eriksson bíður nú milli vonar og ótta eftir því hvort þeir John Terry, Steven Gerrard og Shaun Wright-Phillips verði búnir að ná sér af meiðslum fyrir landsleik Englendinga og Wales um helgina. Enska liðið kemur saman til æfinga í dag og hefur Eriksson gefið út að myndbandsupptökur af síðari hálfleiknum gegn Dönum á Parken um daginn verða skoðaðar rækilega, enda vill hann koma í veg fyrir að annað eins komi fyrir aftur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×