Innlent

Kaupir sex íbúðir á sjö milljónir

MYND/Vilmundur
Bæjarráð Bolungarvíkur hefur samþykkt tillögu húsnæðisnefndar bæjarins um að selja Arndísi Hjartardóttur sex íbúðir í eigu bæjarins í fjölbýlishúsi fyrir sjö milljónir króna. Bæjarins besta segir frá þessu á vef sínum. Húsið var byggt árið 1979 og eru íbúðirnar á bilinu 54 til 65 fermetrar að stærð. Fasteignamatið er 2 til 2,5 milljónir króna og brunabótamatið 7,3 til 8,6 milljónir króna. Söluverð íbúðanna er því rúmlega 15% af brunabótamati. Íbúðirnar hafa að sögn staðið lengi ónýttar og hafa látið verulega á sjá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×