Sport

Shearer bauð Owen númerið sitt

Alan Shearer, fyrirliði Newcastle var ein af aðalástæðum þess að Michael Owen ákvað að ganga til liðs við félagið í gær, en fyrirliðinn hafði verið mjög ötull við að reyna að lokka Owen til liðsins. "Shearer var búinn að vera í stöðugu sambandi við mig undanfarnar vikur og bauð mér meira að segja að klæðast treyju númer níu hjá Newcastle. Ég afþakkaði gott boð og tók númer tíu í staðinn" sagði Owen, en í morgun varð ljóst að Everton gerði lúmska tilraun til að lokka Owen til sín á síðustu andartökunum áður en hann fór til Newcastle, en varð ekki kápan úr því klæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×