Sport

Mourinho hefur ekki áhuga á enskum

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur gefið það út að hann hafi engan áhuga á að taka við enska landsliðinu, en segist þó upp með sér að vera nefndur til sögunnar í sambandi við stöðuna. "Það er mikill heiður að vera orðaður við stöðu landsliðsþjálfara hjá þjóð sem á sér jafn ríka knattspyrnusögu og England, en ég á ekki von á því að ég taki við liðinu í framtíðinni. Sven-Göran er góður þjálfari, en þegar hann hættir, er ég viss um að það verður heimamaður sem tekur stöðu hans og því er ég ekkert að hugsa til þess núna," sagði Mourinho.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×