Innlent

Sækist líklega eftir fyrsta sætinu

Líklegt er að Júlíus Vífill Ingvarsson sækist eftir fyrsta sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa stuðningsmenn hans lagt hart að honum að stefna á fyrsta sætið. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, og Gísli Marteinn Baldursson hafa þegar tilkynnt að þeir gefi kost á sér í fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×