Innlent

Greiði Kynnisferðum tíund

Rútubílaeigendur gera alvarlegar athugasemdir við útboð ríkisins á sérleyfisakstri. Í skilmálum er gert ráð fyrir að Kynnisferðir fái í sinn hlut tíu prósent af sölu farmiða og að sérleyfishafar greiði Vegagerðinni 70 milljónir króna í aðstöðugjald. Vegagerðin auglýsti fyrir tíu dögum útboð á sérleyfisleiðum á Íslandi næstu þrjú ár. Þórir Garðarsson, markaðsstjóri Allrahanda hf., segir að svo virðist sem Kynnisferðir, sem sé mjög stórt fyrirtæki í þessari þjónustu í dag, hafi fengið upp í hendurnar eins konar einokunarsamning við Vegagerðina um rekstur samgöngumiðstöðvar í Reykjavík í húsnæði Umferðarmiðstöðvarinnar. Hann segir aðra rútubílaeigendur furða sig á ákvæðum útboðsins um að Kynnisferðir eigi að fá í sinn hlut 10 prósent af sölu farmiða sérleyfishafans, að sala farmiða í húsi Umferðarmiðstöðvarinnar verði alfarið í höndum Kynnisferða og að óheimilt verði fyrir aðra aðila að selja miða í eða við húsið. Þá segir Þórir nýja skattheimtu felast í útboðinu og það hafi komið flatt upp á menn. Á samningstímanum, sem sé áætlaður þrjú ár, beri þeim sérleyfishöfum sem vilji bjóða í út frá Reykjavík að gera ráð fyrir því í tilboðið sínu að þurfa að greiða 70 milljónir í aðstöðugjald til Vegagerðarinnar. Spurður hvort hann telji líklegt að menn kanni réttarstöðu sína, t.d. gagnvart samkeppnislögum, svarar Þórir því játandi og segist einnig telja líklegt að alþingismenn, sem samþykki fjárveitingar til þess að styrkja almenningssamgöngur á Íslandi, velti fyrir sér hvort fullkomin sátt sé um það að stór hluti af þeim fjármunum sem þeir séu hugsanlega að ráðstafa til þess að niðurgreiða almenningsvagnaþjónustu á Íslandi fari til greiðslu aðstöðugjalda hjá Vegagerðinni. Menn skilji ekki fyrir hvað sé verið að borga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×