Innlent

Mikill tilfinningadagur

"Þetta er mikill tilfinningadagur," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. "Það vita allir hversu mikilhæfur og merkilegur stjórnmálamaður Davíð er." Þorgerður segir að mikill missir verði af Davíð. "Það sem Davíð hefur umfram okkur í stjórnmálum er að hann sér hluti fyrir fram sem við náum ekki alltaf að sjá." Hún segist styðja Geir H. Haarde til formannsstarfa í flokknum, en hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hún bjóði sig fram til varaformanns. "Ég fer ekkert í launkofa með það að auðvitað hefur maður áhuga."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×