Innlent

Hugsar um embætti varaformanns

MYND/KK
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, hafði strax eftir að Davíð Oddsson tilkynnti að hann hætti í pólitík samband við ýmsa stuðningsmenn, til að kanna hvort hann ætti stuðning í embætti varaformanns í Sjálfstæðisflokknum. Hann sagðist vera að fara yfir stöðuna með sínu fólki til þess að vega og meta þá kosti sem uppi eru. Hann sagðist gera ráð fyrir því að fleiri væru að hugsa um embættið og vonaðist til að kosning yrði um embættið í flokknum. Hann sagði það ánægjulegt að fá að takast á í kosningu ef niðurstaðan yrði sú að hann gæfi kost á sér. Hann sagði jafnframt að endanlegt niðurstaða eða svar frá honum lægi fyrir í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×