Innlent

Fagna breytingum á ráðherraliðinu

Landssamband Sjálfstæðiskvenna fagnar ákvörðun Davíðs Oddssonar fráfarandi formanns flokksins um breytingar á ráðherraliðinu. Ásta Möller, formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna, segir almenna ánægju með það innan flokksins hvernig til hefur tekist með val á ráðherrum. Ásta sagði að Landssambandið hafi ekki ályktað um málið sérstaklega en hún sagðist hafa heyrt af almennri ánægju með val ráðherranna. Hún sagði hrókeringarnar hafa komið á óvart á þann hátt að margir áttu ekki von á því að Davíð væri að hætta. En hún benti á að almennur skilningur að flestir séu sammála um að Einar K. Guðfinnson væri næsti maður til að taka við ráðherraembætti vegna hæfni sinnar og þekkingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×