Innlent

Fjölgar í varaformannslagnum

MYND/KK
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Kristján Þór tilkynnti ákvörðun sína á fundi á Akureyri fyrir stuttu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, tilkynnti um framboð sitt til varaformanns í hádeginu í dag. Frambjóðendur eru því þegar orðnir tveir, daginn eftir að Davíð Oddsson tilkynnti þá ætlan sína að hverfa af vettvangi stjórnmálanna. Reiknað er með að fleiri muni blanda sér í varaformannsslaginn og má því búast við fjörugri kosningabaráttu fram að landsfundi flokksins eftir rúman mánuð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×