Innlent

Þorleifur í prófkjör

Þorleifur Gunnlaugsson dúkalagningameistari hefur ákveðið að gefa kost á sér í forval vinstri grænna vegna borgarstjórnarkosninga á næsta ári. Hann segist stefna að þriðja til fjórða sæti listans. Þorleifur er varaformaður Vinstri grænna í Reykjavík og hefur verið virkur í borgarmálum í tæp fjögur ár. Hann situr í stjórn SÁÁ og er fyrrum formaður Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara og tók þátt í stofnun Meistarasambands byggingarmanna. Hann segir að sín helstu baráttumál verði í félagsmálum, auk þess sem hann hafi mikinn áhuga á skipulagsmálum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×