Innlent

Leggur fram fé vegna Katrínar

Ríkisstjórn Íslands ætlar að leggja fram 31 milljón króna í fjársöfnun fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Peningarnir verða lagðir í sjóð sem George Bush eldri og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, stýra. Ríkisstjórnin ákvað þetta á óvenju fámennum fundi í morgun, en margir ráðherrar eru staddir erlendis. Framlag Íslands var ákveðið hálf milljón Bandaríkjadala - að minnsta kosti að sinni. Evrópusambandsþjóðirnar hafa sent flugvélafarma af hjálpargögnum undanfarna viku, en forsætisráðherra segir þessa ákvörðun tekna í samráði við Bandaríkjamenn. Þeir hafi sagt mesta þörf fyrir fé. Fénu verði varið til langtímauppbyggingar á hamfarasvæðunum. Forsætisráðherra hélt utan síðdegis í dag, en hann mun sitja leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna í New York. Halldór segir ekkert hafa breyst hvað varðar framboð Íslands til setu í öryggisráðinu. Verið sé að fara yfir þann kostnað sem menn hafi áætlað í þessu sambandi og mörgum finnist áætlunin vera há. Hann telji rétt að draga úr kostnaðinum en það sé gert ráð fyrir að framboðinu verði haldið áfram enda hafi það verið kynnt þannig, bæði innan hinna norrænu ríkjanna sem standi á bak við Íslendinga og meðal annarra þjóða. Ísland hefur stutt breytingatillögur Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, en líkur minnka sífellt á að þær gangi í gegn. Það eru mikil vonbrigði, segir Halldór. Hann telji það vera mikla skömm að því fyrir þjóðir heims að leggja upp þennan leiðangur þar sem allir séu sammála um að það þurfi að fara í endurskipulagningu og ná svo engri niðurstöðu. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×