Innlent

57% vilja Vilhjálm í fyrsta sætið

52 prósent sjálfstæðsimanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins við komandi borgarstjórnarkosningar og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir einkafyrirtæki og birt er í Morgunblaðinu. Dæmið snýst hins vegar við þegar borgarbúar úr öllum flokkum voru spurðir. Þá völdu rúmlega 57 prósent Vilhjálm og tæp 43 prósent Gísla Martein. Tekið er fam að vikmörk könnunarinnar séu tæp fimm prósent.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×