Innlent

Tók af öll tvímæli um framboð

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af öll tvímæli um framboð Íslendinga til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Verðandi utanríkisráðherra vill ekki tjá sig um málið. Miðað er við kjörtímabilið 2009 til 2010 og fengi íslenski fulltrúinn ekki neitunarvald eins og fulltrúar ríkja með fastafulltrúa. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði nýverið að það biði Geirs Haarde, verðandi utanríkisráðherra, að taka endanlega ákvörðun í málinu. Geir hefur sagt að hann vilji ekki tjá sig um málð fyrr en hann hefur formlega tekið við embætti utanríkisráðherra og var það ítrekað í ráðuneytinu í morgun en nú liggur ákvörðunin hins vegar fyrir. Athygli vekur að í frétt frá forsætisráðuneytinu um innihald ræðu Halldórs, en tilkynningin var send út rétt fyrir miðnætti, er ekki minnst einu orði á þessa yfirlýsingu hans og í ræðu Halldórs, sem væntanlega var birt eftir handriti hans á vef Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi, var yfirlýsingin heldur ekki með, en Halldór bar hana hins vegar fram alveg í lok ræðunnar á fundinum sjálfum. Áætlað hefur verið að það kosti um það bil 600 milljónir króna að vinna framboðinu fylgi því fleiri ríki sækjast eftir sætinu. Ríkisstjórnir hinna norrænu ríkjanna hafa þegar lýst stuðningi við framboðið og líta á fulltrúa Íslendinga í ráðinu sem fulltrúa Norðurlanda allra samkvæmt þeirri hefð að Noðrurlöndin standa saman á þessum vettvangi. Ýmsar aðrar þjóðir hafa líka lýst stuðningi við framboð Íslendinga þótt niðurstaða sé alls ekki í hendi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×