Innlent

Fleiri treysta Vilhjálmi en Gísla

Rétt liðlega 57 prósent Reykvíkinga treysta Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni vel til að gegna starfi borgarstjóra í Reykjavík en rúmlega 42 prósent treysta Gísla Marteini Baldurssyni vel. Vilhjálmur hefur ekki bara vinninginn á helsta keppinaut sinn um forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í borginni að þessu leyti í nýlegri könnun Gallups, mun fleiri treysta Gísla Marteini en honum illa til að gegna starfi borgarstjóra. Tæplega 39 prósent treysta Gísla Marteini illa, 23 prósent treysta Vilhjálmi Þ. illa. Ef valið stæði á milli þeirra tveggja hefði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mun meira fylgi samkvæmt sömu Gallup-könnun, 57,3 prósenta fylgi á móti 42,7 prósenta fylgi Gísla Marteins. 54 prósent sögðust mundu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef kosið yrði í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×