Innlent

Steinbítur friðaður við hrygningar

Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni, þ.e. frá og með 24. september næstkomandi til loka marsmánaðar 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að reglugerðin sé gefin út að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar og í samráði við Landssamband íslenskra útvegsmanna. Nokkur breyting hefur orðið á staðsetningu friðurnarsvæðisins frá því í fyrra og þá hefur gildistími bannsins lengst.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×