Innlent

Vill kosningabandalag á Ísafirði

Vinstri - grænir á Ísafirði vilja bjóða fram sameiginlegan lista með Samfylkingunni og Frjálslynda flokknum við bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður Vinstri - grænna á Ísafirði, segir það mat Vinstri - grænna að sameiginlegt framboð hefði möguleika á að ná meirihluta í bæjarstjórn, en í dag mynda Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur meirihluta í bæjarstjórn. Hún sagði þó óljóst hver viðbrögð Samfylkingarfólks og Frjálslyndra yrðu við hugmyndinni og kvað Vinstri - græna reiðubúna í sjálfstætt framboð ef ekki yrði af kosningabandalagi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×