Innlent

Dæmt til að borga starfsmanni laun

Fyrirtækið Norðan heiða á Hvammstanga verður að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Starfsmanninum var sagt upp störfum vorið 2004 og skömmu eftir uppsögnina lét hann af störfum. Hann og yfirmann hans greindi á um hvort starfslokin væru að ósk starfsmannsins eða fyrirtækisins og höfðaði hann mál til að fá greidd laun í uppsagnarfresti. Héraðsdómur Norðurlands vestra sýknaði fyrirtækið af kröfu mannsins en Hæstiréttur dæmdi fyrirtækið til að greiða honum launin auk dráttarvaxta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×