Krónan sögð til trafala 4. október 2006 06:15 Á fundi viðskiptaráðs Þar sagði Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, meðal annars að stjórn peningamála væri erfiðari í minni hagkerfum og gengisáhrif vægju þyngra. Gengissveiflur sagði hann óhjákvæmilegan fylgifist peningamálastefnunnar. MYND/GVA
Hér eru aðstæður almennt góðar en örmyntin helst til trafala. Ég tel að atvinnulífið muni stíga enn frekari skref út úr krónuni og við það veikist miðlunarkerfi Seðlabankans enn frekar, segir Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marels. Hann var með framsögu á líflegum fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun um stöðu krónunnar. Yfirskrift fundarins var Er krónan að laumast út bakdyramegin? og hann sótti á annað hundrað manns. Spurningunni um hvort krónan sé að laumast út bakdyramegin er í mínum augum sjálfsvarað, segir Árni Oddur og telur forsendu fyrir því að núverandi ástand gangi sé að miðlun peningastefnu Seðlabankans gangi eftir en svo geti tæpast talist nema í gegn um gengi krónunnar, en ekki í gegn um vexti. Hátt gengi krónunnar þrengir svo að samkeppnisgreinum og skapar væntingar um að gengið lækki og hvetur almenning til að flýta neyslu sinni. Hann segir að innan Actavis, Össurar og Marels hafi farið fram alvarleg umræða um skráningu hlutabréfa í evrum og segir mikilvægt að fyrirtækin sameinist um eina mynt komi til þess að þau leggi af krónuna, til þess að viðskiptakostðaur verði ekki of mikill. Hann segir krónuna sífellt minni þátt í rekstri Marels, í fyrra hafi 25 prósent kostnaðar félagsins verið í krónum, á næsta ári verði það 12 prósent og sjö prósent árið 2009. Við horfum ekki lengur á krónuna sem hagstærð í okkar rekstri, segir hann og kveður eina stóra snertiflötinn við krónuna sem eftir standi þá vera viðskipti með bréf félagsins í Kauphöllinni. Árni bendir á að krónan skapi vandamál fyrir bankana því flökt á gengi hafi áhrif á eiginfjárhlutfall þeirra, sem ekki megi fara undir ákveðin mörk. Hann telur þannig hag bankanna betur komið með því að skrá sig í annarri mynt, enda séu tveir þriðju hlutar bæði útlána og tekna þeirra í erlendri mynt. Auk Árna Odds flutti Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur í Seðlabankanum, erindi um áhrif af útgáfu svokallaðra jöklabréfa. Hann segir útlit fyrir hátt vaxtastig á næsta ári þegar megnið af bréfunum er á gjalddaga og haldist sæmilegur stöðugleiki, verði þá ekki teljandi áhrif á gengi krónunnar. Hann telur krónuna alls ekki á útleið, það sýni áhugi fjárfesta á henni. Fundarstjóri var Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningadeildar Landsbankans, en í pallborðsumræðum tóku þátt Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, Illugi Gunnarsson hagfræðingur og Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík. Ólafur segir mikilvægt að í umræðu um gjaldmiðilinn sé breytt staða landsins á sviði utanríkismála tekin inn í myndina. Spurningin um stöðu okkar, til dæmis gagnvart Evrópu, hlýtur að vera miklu ofar á dagskrá en hún var áður en til þess koma að samband okkar við Bandaríkin tók örlítið að flosna upp, bendir hann á. Arnór Sighvatsson hjá Seðlabankanum segist ekki telja upptöku evru munu gerast nema fyrir tilstilli stjórnvalda þótt hægt væri að greiða henni þungt högg ef á vinnumarkaði yrði ákveðið að semja um kaup og kjör í evrum. En það yrði varla nokkurn tímann samkomulag um slíkt tilræði við krónuna. Hann segir stórnvöld þurfa að læra af hagsveiflunni nú og passa að ráðast ekki í margar stórframkvæmdir hverja ofan í aðra. Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista og formaður Viðskiptaráðs, setti fundinn, en með honum er fylgt eftir skýrslunni Krónan og atvinnulífið sem Viðskiptaráð gaf út í sumar. Hann segir ráðið áfram munu leiða umræðu krónuna, enda skipti hún miklu máli fyrir rekstur fyrirtækja í landinu.
Viðskipti Mest lesið Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Viðskipti Heimsskortur á pistasíum vegna Dúbaí-súkkulaðis Viðskipti erlent Hvar er opið um páskana? Neytendur Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf Elskar kaffi að ítölskum sið og línulega dagskrá Atvinnulíf Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Viðskipti innlent Systkinin öll verið forsetar: „Tvö félög, tvöfalt stuð!“ Atvinnulíf Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Atvinnulíf Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Sjá meira