Rekstur Árvakurs fer batnandi 16. nóvember 2006 06:30
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur lokið við sölu á nýju hlutafé fyrir hálfan milljarð króna til að styrkja félagið. Stefán P. Eggertsson, stjórnarformaður Árvakurs, segir að rekstur félagsins það sem af er ári sé betri en í fyrra þegar það tapaði 187 milljónum króna. Samt sem áður þurfi að gera betur á næsta ári. Unnið hafi verið ötullega að því að laga til í rekstri Árvakurs en aðgerðir, sem ráðist er í, skili sér ekki strax. Allir þáverandi hluthafar félagsins nýttu sér forkaupsrétt að hlutafénu. Breytingar hafa orðið á hluthafahópnum er Ólafsfell, félag Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbankans, eignaðist átta prósenta hlut af Leifi Sveinssyni. Á hluthafafundi í síðustu viku tók Steingrímur Pétursson, fyrrverandi fjármálastjóri Avion, sæti í stjórn Árvakurs af Halldóri Þ. Halldórssyni og Ragnhildur Geirsdóttir tók við starfi varaformanns stjórnar af Kristni Björnssyni. Stefán verður eftir sem áður stjórnarformaður félagsins. Árvakur heldur utan um helming hlutafjár í Ár og degi, útgáfufélagi Blaðsins. Fyrir skemmstu var hlutafé Blaðsins aukið og vonast Stefán að ekki þurfi meira til í þeim efnum. Með aukinni dreifingu hafi Blaðinu vaxið fiskur um hrygg.
Viðskipti Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira